WERE EVERYBODY KNOWS YOUR NAAAMMEE AND I'M OH SO GLAD YOU CAAAMMEE... -YOU WANNA BE WERE EVERYBODY KNOWS YOUR NAME

laugardagur, apríl 01, 2006


Já fyrir þá sem ekki vita er ég í mömmuleik á Ásbraut 2
(Jói í frítúr og er í pabbaleik)
Þetta eru að sjálfögðu "mjög virku" strákarnir hennar Sólnýjar og Svenna... Guðjón, Sighvatur og Pálmar!
JJJIii þetta er sko ekkert grín..
Eeeelska þessi yndi í klessu en ég er sko ekki að fara koma með krakka í bráð!!!
Þessi vika hefur verið mjög lærdómsrík svo ekki sé meira sagt.
Vakna kl. 7:30 kem Guðjóni í skólann, vek hin krílin um 8 hálf 9, gefi þeim að borða(gengur mis vel) og klæði þá (gengur einnig misvel) kem þeim venjulega í leikskólann um níu (stundum kemst maður ekki fyrr en 10:30hehe) .
Tá tekur við "Fóstrufundur", þar er farið yfir; morguninn, gærdagurinn, skipulag dagsins, verkaskipting, hvað má betur fara, annað og svo peppað hvort annað upp! hahaha við erum bara fyndin!! Stundum bugast annað og hitt fer að rífst og allavegana. Þetta er sko ekki grín ef maður er ekki vel skipulagður!
En við erum núna í vikulok komin með allt under control!
Sólný og Svenni njóta lífsins til fullnustu á Kúbu og eiga það svo sannarlega skilið!
Erum núna hjá múttu og pappa í mat böðuðum stákana eftir matinn og ísinn í spa pottinum og eru þeir nú hreinir, háttaðir og að lita! Við förum að tía okkur hjemme eftir leikinn (barse-real)
Svo kemur Óskar víst í kvöld og partý hér heima!
Lokapróf á mánudaginn og mömmuleikurinn á enda á þriðjudag.. uuusss á eftir að sakna þeirra hrikalega! Allavegana bið ég að heilsa og bið Ólöfu hér með formlega afsökunnar að komast ekki í útskriftina hennar í mai!! buhuuu
Enda með laginu úr Babysitterclub.. hahaha hver man ekki eftir þeim???
"say hallo to my friend..(babysitterclub)
say hallo to the people who cares (babysitterclub)"

6 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Mín skoðun.Margrét fer í útskriftina hjá tvibbasystur sinni.Engin spurning. Pabbi.

11:12

 
Anonymous Nafnlaus said...

Á ég að trúa því að þú komist ekki í útskriftina !! Þú hlýtur að redda þessu ;)

En það er allt öðruvísi að vera að passa annara manna börn en manns eigin ;) bara smá comment. ÉG held að þið Jói verðið flottir foreldrar :D:D

21:53

 
Anonymous Nafnlaus said...

Já magga ég er sammála pabba þínum þú ferð í útskriftina og ekkert bull!!
Jiii og ég var búin að stein gleyma babysitterclub haha það voru hreynt magnaðir þættir:)

22:11

 
Anonymous Nafnlaus said...

haha ja pabbi minn okey smá aprílgabb!
já Petra helduru ekki?? haha við erum samt ekki alveg búin að finna sameiginlega uppeldisaðferð, ég leik alltaf góðu mömmuna og hann vonda pabbann. Ég skamma hann fyrir að vera of strangur og hann mig fyrir að vera of lin! haha En ég panta samt að eiga svona skemmtilega krakka eins og þá, kannski aðeins minna virka :)))
Ja Ingibjörg þeir voru alltaf á lau á eftir afa er það ekki?? haha
en ju ju verð að ná af þér tali áður en þú ferð til Kanarí!! Oj þér b.t.w ;)

22:38

 
Blogger Erla Ósk said...

Eg kolfell lika fyrir thessu eins og pabbi... Magga ekki ad koma i utskriftina??? Hahaha En thad er gott ad vita ad thu SERT AD KOMA thvi eg er buin ad vera ad gera heimilid klart fyrir allt folkid sem er ad koma. Hlakka rosalega til ad sja thig!

p.s. Hvuttinn bidur ad heilsa

18:02

 
Anonymous Nafnlaus said...

óóó var þetta aprílgabb !!! Þá féll ég líka ....var að spá í þessu :S

21:51

 

Skrifa ummæli

<< Home