WERE EVERYBODY KNOWS YOUR NAAAMMEE AND I'M OH SO GLAD YOU CAAAMMEE... -YOU WANNA BE WERE EVERYBODY KNOWS YOUR NAME

föstudagur, júní 23, 2006

Glæsilegt herra Svæfingalæknir

Sælar, þetta er flugstjórinn sem talar, eða bara Ólöf pillugjafi sem heldur Möggu sky-high. Hún er eins og alþjóð veit ekki hæf til þess að blogga þar sem enginn veit hvað hún myndi láta út úr sér eftir alla þessa lyfjagjöf (eftir aðgerðina í gær fór hún að gefa svæfingarlæknunum hæ-fæf og kyssa hjúkkurnar good-job!)

en svona fyrir ykkur sem viljið vita það þá heilsast henni bara ágætlega nema er illt af lyfjunum og getur ekki borðað, nema tvær stjörnsnakk sneiðar sem ég otaði að henni í gær. en kæru vinir, örvæntið ekki, ólöf systir er með fúll kontról á´essu, labbaði reyndar tvisvar á löppina á henni í gær, ekkert alvarlegt, gaf henni bara meiri lyf!

en jæja, núna er sjúklingurinn farinn að dilla sér í takt við símann sinn og kannski tími til kominn að fara að gefa henni eitthvað að borða svo hún fari ekki að sjá hluti í veggjunum...

kem með frekari læknasögur síðar. þangað til þá verið góð við hvort annað, það er aldrei að vita hvenær maður dettur á skíðum og lendir í svona...

ólöf daðey, pína páls, lafaskafa og djúsí in da djakúsí

12 Comments:

Blogger Lafan said...

og já magga, í svona veikindum verður maður að geta horft á eina bíómynd í senn... athyglisbrestur hvað??

13:59

 
Anonymous Nafnlaus said...

haha ja taka tvö i kvöld!!
ég verð bara alltaf svo óþolinmóð þegar ég þarf að horfa á eitthvað! haha

19:09

 
Blogger Erla Ósk said...

Gott ad heyra ad uppskurdurinn hafi gengid vel! Heyri vonandi i ykkur fljotlega :)

kv, Erla perla stora systir

22:30

 
Anonymous Nafnlaus said...

ja á morgun sæta min!!!
vek þig með þægilegu spjalli og uppörvandi línum fyrir daginn og vikuna!!
Jæja, enginn heima og stelpan ætlar bara að fara leggja sig, taka lyfin sin sjálf..-eða var ég búin að því?? Æi þá bara sef ég enn fastar!
Nighty night :*

00:17

 
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ skvísur:)
Magga ég ætlaði nú bara að senda þér batakveðjur láttu þér bara líða vel sæta:) Reyndu nú bara að láta systur þína hugsa vel um þig :)
Ólöf gaman að hitta þig í gær :)
Kveðja Birgitta

22:39

 
Blogger Linda Hlín said...

Sæl Magga mín... úff það er aldeilis sem er lagt á þig kona! En nú held ég að það sé rækin ástæða fyrir okkur að hittast... margt að spjalla... ;) sakna þín. kveðja Linda.

10:46

 
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir það Gitta mín, jú Ólöf stendur sig eins og hetja, nema þegar hún stingur af til að fara á djammið haha!!
Já Linda okkar tími er kominn, löngu kominn!
Er orðin virkilega spennt í spjall hehe
Ég heyri i þér í vikunni og við barasta finnum tíma ;)
miss you
kiss kiss og knús

12:20

 
Blogger Lafan said...

birgitta.. ég verð nú að viðurkenna að commentið minnti mig á að hafa hitt þig... en í minningunni var það ógisssssslega skemmtilegt!

12:59

 
Anonymous Nafnlaus said...

hehe það var nú gott :) Minning mín er líka góð, alltaf gaman að vera svolítið hífaður hehe:)

17:24

 
Anonymous Nafnlaus said...

já einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að þú eigir eftir að standa lengur í þessu með þessa einstaklega heppnu hjúkrunarkonu :S Verður hún ekki bara búin að yfirfylla þig með lyfjum og þú ruglar bara og ruglar ??

Nei Ólöf mín þú stendur þig vel...jafnvel og í leiknum ungar-gamlar .... 4-6 ... við erum að toppa á réttum tíma ;)

08:54

 
Anonymous Nafnlaus said...

BLOGGA KONA!!!!!!

16:44

 
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ elskan mín, ég get nú ekki sagt annað en það sé bara svoldið tómlegt án þín á NordicaSpa =(
... en láttu þér nú batna sem fyrst =)
KISS KISS

20:32

 

Skrifa ummæli

<< Home