Taka 2
Shit var búin að skrifa heilan fokkings helling!!
En ýtti óvart á refresh takkann og allt út...aaarrrrrrrrrrrrgggggggggg
Þetta var allavegna þarna inni:
Gebba, litla og Ingibjörg takk fyrir komuna í morgun, komu í morgunkaffi til mín, te og rist ásamt 2 teg af kökum og kexi.. vaxað, spallað, dúllast og dást, borðað, borað í nefið og horft á friends!!
Jói tók uppá því í veikindunum að vera rómantískur og var búinn að laga til, kveikja á milljón kertum og látið renna í heitt freiðibað (vantaði bara hvítvínið, gæti svo sem fyrirgefið honum það í þetta skiptið ;) hihi)
Er orðin drullu nervus að fara til spákonu á morgun, er hrædd um að fá að heyra eitthvað sem ég vil ekki heyra, og að fá skammir frá fólkinu að handan útaf leyndarmálunum mínum, annars er ég spennt að fá að vita hvort grindvíkingar falli, hvort ég lendi á séns með einhverjum af hollywood liðinu, hvort ég verði rík á næstunni og hvort ég verð næsti tækwondó meistari .. c",)
-..ef þið viljið vita eitthvað meir látið mig bara vita fyrir kl.11:10 á morgun 1.sept!!! Spúkí spúkí
Bara 3 dagar eftir með Ólöfu, hitti hana nú samt ekki mikið, örugglega bara á föstudaginn..það er þá vonandi að maður muni nú eftir kvöldinu!!
Henýwey, kveð með orðum kallsins sem ég sé alltaf síðast áður en ég fer að sofa...
"Hasta la victoria siempre! ..Che"
p.s Linda myndirnar koma um leið og forritið mitt kemur í bæinn (er nebbla ný tölva sem hefur ekki þetta myndaforrit, annars panta ég plaggat af grettu myndinni okkar!!!! hahah